BORGARBÓKASAFNIÐ

Starfsfólk Borgarbókasafnsins tekur á móti fjölbreyttum hópum, bæði börnum og fullorðnum, innlendum sem erlendum.
Fyrir yngstu börnin er boðið upp á sögustundir og grunnskólabörn fá úrval safnkynninga, sem hafa það að markmiði að kynna fyrir þeim safnkostinn og aðstöðuna, svo þau geti nýtt sér söfnin á sínum eigin forsendum.
Starfsfólk Borgarbókasafnsins í Gerðubergi ,Grófinni, Kringlunni, Spönginni og Úlfarsárdal tekur einnig fagnandi á móti stórum hópum og smáum, í leiðsögn um húsakynni safnsins, safnkostinn og aðstöðuna. Allir hópar eru hjartanlega velkomnir. Hægt er að fá kynningu á íslensku eða ensku. Kennarar í efstu bekkjum grunnskóla, framhaldsskólakennarar og þau sem kenna íslensku sem annað mál, eru sérstaklega hvött til að koma með nemendur sína í vettvangsferð á safnið.
Í heimsókninni fræðast gestir almennt um Borgarbókasafnið, meðal annars að:
- það sé á átta stöðum í Reykjavík.
- öll séu velkomin, alltaf, og að ekki þurfi að eiga bókasafnskort til að njóta þar góðra stunda.
- þar sé tilvalið að hanga með góðum vinum til að læra saman, spila, sinna hannyrðum eða hvaðeina sem gesti langar til að gera.
- á safninu séu fjöldi ókeypis viðburða í hverri viku; tónleikar, föndur, fræðsla, smiðjur og ótalmargt fleira, fyrir börn og fullorðna.
- ekki þarf að eiga bókasafnskort til að mæta á viðburði.
- áhugasöm geta haldið sína eigin viðburði á bókasafninu.
- börn undir 18 ára fá ókeypis bókasafnskort.
...og ýmislegt fleira.
Þá er rölt um safnið og gestum sýndur safnkosturinn og aðstaðan. Auk fjölbreytts bókakosts á íslensku og ensku á Borgarbókasafnið einnig ágætt safn barna –og fullorðinsbóka á öðrum tungumálum.
Innlendir og erlendir kollegar frá bókasöfnum og menningarstofnunum er jafnframt hjartanlega velkomnir.
Hver hópur fær sérsniðna dagskrá í samræmi við óskir og áherslur heimsóknarinnar.
Fyrirspurnir um hópheimsóknir:
Vinsamlegast hafið samband við viðkomandi safn eða sendið póst á borgarbokasafn@borgarbokasafn.is