BORGARBÓKASAFNIÐ

Fjársjóðsleitin er skapandi fræðsluverkefni fyrir nemendur í 4. til 6. bekk í grunnskóla þar sem þeir þjálfast í upplýsingaleit, auk þess að kynnast safnkosti og aðstöðu Borgarbókasafnsins Grófinni.
Við komuna á safnið les starfsmaður stutta sögu um börn sem þurfa að leita heimilda til að keppa við gráðuga galdranorn í spurningakeppni, í húfi eru allar bækur þorpsins OG einhyrningsfolald! Í kjölfarið fá börnin ævintýralegt kort af barnadeildinni sem þau nýta til að finna og merkja inn valdar bækur í ævintýraþema. Í lokin safnast hópurinn aftur saman og skreytir kortin sín.
Tilgangur fræðslunnar er að kynna fyrir nemendum starfsemi bókasafnsins, þjálfun í leit eftir stafrófsröð, heimildaleit á bókasafninu og skráningu heimilda. Unnið er út frá hæfniviðmiðum aðalnámsskrár.
Fjársjóðskortið og grafík verkefnisins eru gerð af Eysteini Þórðarsyni, teiknara og hönnuð.
Ef hentugur tími finnst ekki má einnig senda tölvupóst á Báru Bjarnadóttur, sérfræðing í barnastarfi: bara.bjarnadottir@reykjavik.is