BORGARBÓKASAFNIÐ

Borgarbókasafnið sendir út boðsbréf til skólanna og býður 10. bekkingum upp á glæsilega dagskrá.
Þjóðþekktur lestrarhestur spjallar við höfunda og þýðendur um nýjustu ungmennabækurnar, um efni bókanna og skyggnist með nemendum inn í líf og starf rithöfundarins og þýðandans. Auk þess lesa höfundar og þýðendur upp úr nýjustu bókunum sínum og gefa þannig nemendum smá forsmekk af því sem leynist í jólabókaflóðinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs - lestrarhvatning og fræðsla
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6246