BORGARBÓKASAFNIÐ

Hinseginleikinn og fjölbreyttar fjölskyldur eru í sviðsljósinu í þessari notalegu sögustund. Regnbogasögur standa til boða fyrir börn á leikskólastigi, yngsta og miðstigi grunnskóla, en með ólíku sniði eftir aldri.
Fyrir grunnskólahópa fylgir fræðandi leikur í kjölfar sögustundar, þar sem bókin er skoðuð nánar út frá hæfniviðmiðum íslensku um orðaforða, hlustun og áhorf.
Leikskóla- og grunnskólahópum sem bóka Regnbogasögur býðst einnig að fá með sér föndurverkefni heim: Sérhannaður goggur sem inniheldur umræðupunkta um fjölbreytileikann, tilvalið í samtal milli foreldra og barna. Goggurinn er unninn af starfsfólki Borgarbókasafnsins í samtali við Samtökin ‘78, hannaður af Kakkalakki hönnunarstofu.
Ef hentugur tími finnst ekki má einnig senda tölvupóst á Báru Bjarnadóttur, sérfræðing í barnastarfi: bara.bjarnadottir@reykjavik.is