BORGARBÓKASAFNIÐ

Í þessari sögustund er bókinni ekki varpað upp á skjá heldur er lesið beint upp úr henni fyrir lítinn hóp barna. Hugmyndin er að skapa rólegt andrúmsloft þar sem tækifæri gefst til að skoða bókina sjálfa til hlítar. Hópurinn situr í hring og barnabókavörður les úr bókum þar sem myndskreytingar spila stórt hlutverk. Stuttlega er rætt um mikilvægi þess að fara vel með bækur.
Mælt er með fámennum hópum fyrir þessa sögustund, 10 börn eða færri. Ef stórir hópar vilja bóka er hægt að skipta hópnum upp og lesa fyrir hluta í einu á meðan hin leika sér frammi í barnadeild.
Nánari upplýsingar veitir:
Bára Bjarnadóttir, sérfræðingur
bara.bjarnadottir@reykjavik.is | 411-6100