chat and play in Icelandic logo

Information about the event

Time
11:30 - 13:30
Price
Free
Target
Adults
Language
Kennararnir tala ýmis tungumál
Language

Spilum og spjöllum á íslensku

Saturday November 2nd 2024

Komdu og æfðu þig að tala íslensku í notalegu og afslöppuðu umhverfi og hittu fleiri sem eru líka að læra. Öll velkomin - líka byrjendur! 

Þátttaka er ókeypis og engin skráning, bara mæta!

Leiðbeinendur hafa mikla reynslu í að kenna íslensku sem annað mál. Við spilum allskonar spil, förum í orðaleiki, spjöllum og skemmtum okkur vel.

Öll geta verið með, líka þau sem eru að byrja að læra íslensku - við eigum spil fyrir öll þrep, leiðbeinendur aðstoða þig við að finna rétta spilið fyrir þig. 

Spilum og spjöllum er hluti af viðburðaröðinni Spjöllum með hreim (Let's chat with an accent), þar sem boðið er upp á fjórar skemmtilegar og ólíkar leiðir til að æfa sig að tala íslensku undir handleiðslu reyndra kennara.

Hér getur þú lesið meira um Spjöllum með hreim og séð alla dagskrána. 

Viðburður á facebook
 

Fyrir nánari upplýsingar:
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur fjölmenningarmála
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is