Information about the event

Time
11:30 - 13:30
Price
Free
Target
Adults
Language
-
Talks & discussions
Language

Spilum og spjöllum (í stað Skoðum og spjöllum)

Saturday March 21st 2026

ATH. Í dag átti að vera skoðum og spjöllum samkvæmt dagskrá en vegna veikinda þurfti að breyta og verður ljúf spilastund í Grófinni í staðinn.  Öll hjartanlega velkomin, byrjendur og lengra komin, spil fyrir öll getustig. 

 

Lærðu íslensku með okkur og hittu fleiri sem eru líka að læra! Þátttaka er ókeypis og engin skráning.

Leiðbeinendur hafa mikla reynslu í að kenna íslensku sem annað mál. Við spilum allskonar spil, spjöllum og skemmtum okkur vel. Öll geta verið með, líka þau sem eru að byrja að læra íslensku - við eigum spil fyrir öll þrep og leiðbeinendur eru til aðstoðar.

Spilum og spjöllum á íslensku er hluti af viðburðaröðinni Spjöllum með hreim, þar sem boðið er upp á fjölbreyttar og skemmtilegar leiðir til að æfa sig að tala íslensku undir handleiðslu reyndra kennara.

Dagskrá Spjöllum með hreim má finna HÉR.

Viðburður á Facebook


Nánari upplýsingar veitir:
Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is | 411 6116