Information about the event
Heimspekisamtal | Tækni og samfélagið
Hvað í lífi okkar hefur ekki verið tæknivætt með einum eða öðrum hætti? Að hvaða leiti hefur tæknin haft áhrif samfélagið sem við búum í og tengsl okkar á milli?
Öll velkomin, þátttaka ókeypis
Heimspekisamtal er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og nemenda heimspekinámskeiðsins "Stjórnmál og samfélag" við HÍ þar sem þau undirbúa Opið samtal um formleg réttlætiskerfi og vald, og svo kapítalisma og gildi þess sem er ómælanlegt í okkar samfélagi eins og náttúrulegt umhverfi og tengsl.
Fjögur samtöl fara fram í nóvember í Grófinni og eru þau opin öllum áhugasömum:
Miðvikudag 06.11.2024 - Slaufun og réttlæti
Föstudag 08.11.2024 - Borgaraleg óhlýðni
Miðvikudag 13.11.2024 - Náttúran og samfélag
Föstudag 15.11.2024 - Tækni og samfélag
Opið samtal á Borgarbókasafninu er umræðuvettvangur þar sem við ræðum saman brennandi málefni á jafningjagrundvelli, með það að markmiði að finna svörin saman, koma málum í farveg og að ólík sjónarmið fái að heyrast.
Frekari upplýsingar veitir:
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is