Heimspekisamtal

Information about the event

Time
17:00 - 18:00
Price
Free
Language
Íslenska
Talks & discussions

Heimspekisamtal | Borgaraleg óhlýðni

Wednesday November 6th 2024

Hvað telst til borgaralegrar óhlýðni og hvenær er hún réttlætanleg?  

Taktu þátt í opnu samtali um borgaralega óhlýðni með heimspekinemum við HÍ þar sem þau flétta saman heimspekihugleiðingum við efni samtalsins.  

Öll velkomin, þátttaka ókeypis 

Viðburður á Facebook 

Heimspekisamtal er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins þar sem nemendur heimspekinámskeiðsins "Stjórnmál og samfélag" við HÍ ræða í Opnu samtali  formleg réttlætiskerfi og vald, og svo kapítalisma og gildi þess sem er ómælanlegt í okkar samfélagi eins og náttúrulegt umhverfi og tengsl.

Fjögur samtöl fara fram í nóvember í Grófinni og eru þau opin öllum áhugasömum:  
Miðvikudag 06.11.2024 - Slaufun og réttlæti   
Föstudag 08.11.2024 - Borgaraleg óhlýðni  
Miðvikudag 13.11.2024 - Náttúran og samfélag  
Föstudag 15.11.2024 - Tækni og samfélag   

Opið samtal á Borgarbókasafninu er umræðuvettvangur þar sem við ræðum saman brennandi málefni á jafningjagrundvelli, með það að markmiði að finna svörin saman, koma málum í farveg og að ólík sjónarmið fái að heyrast.  

Frekari upplýsingar veitir:  
Dögg Sigmarsdóttir  
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka  
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is