Information about the event
Sýningarspjall | Hvað á svo að gera við allar bækurnar?
Sýningarstjórar sýningarinnar Þín eigin bókasafnsráðgáta í Borgarbóksafninu Gerðubergi, þær Embla Vigfúsdóttir og Svanhildur Halla Haraldsdóttir, segja frá tilurð sýningarinnar og framleiðslu. Jafnframt verður skoðað hvernig hægt sé að halda bókum inn í hringrásarhagkerfinu, eftir að þær eru marglesnar. Hvað eigum við að gera við allar bækurnar að sýningu lokinni?
Þín eigin bókasafnsráðgáta opnaði 2. október 2021 og er sýning og leikur í anda flóttaherbergja (Escape room). Öll sýningin er gerð úr endurnýttum hlutum s.s. bókum og húsgögnum úr Góða hirðinum. Við gerð sýningarinnar áttuðu höfundarnir sig á því að mikið af bókum er hent í ruslið - líka þær sem fá að stoppa í smástund í Góða hirðinum. Bækur má nýta í margt annað en lestur eins og sést glögglega á sýningunni.
Hvetjum öll til að mæta sem áhuga hafa á sýningargerð og endurvinnslu og þess má geta að það má „stela“ sýningunni.
Frekari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, deildarbókavörður
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is