
Information about the event
Time
20:00 - 21:30
Price
Free
Library
Target
Adults
Language
Íslenska
Past Events
Kvöldganga | Á slóðum furðusagna
Thursday June 27th 2024
Alexander Dan Vilhjálmsson og Hildur Knútsdóttir eru þekkt fyrir að skrifa furðusögur. Sögusvið bóka þeirra er Ísland – og Reykjavík – en margt er þó öðruvísi en við eigum að venjast úr raunheimum. Í göngunni munu þau leiða gesti um miðborg Reykjavíkur og segja frá stöðum sem hafa verið þeim innblástur til að skrifa um öðruvísi veröld.
Kvöldgöngur eru viðburðaröð sem Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO standa fyrir. Göngurnar fara fram á fimmtudagskvöldum frá kl. 20:00 - 21:30 yfir sumarmánuðina.
Kynntu þér kvöldgöngur sumarsins HÉR.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115