
Information about the event
Time
17:30 - 19:00
Price
Free
Library
Target
Everyone
Language
Íslenska
Learning
Fríbúð | Fríbúðarkaffi #4 – Guðmundur B. Friðriksson
Wednesday December 10th 2025
Má bjóða þér að kíkja í kaffi og tengjast nærsamfélaginu?
Í vetur munum við reglulega vera með heitt á könnunni í Fríbúðinni og bjóða góðum gestum í heimsókn. Stundum óformlegt spjall og stundum fræðandi fyrirlestrar. Öll velkomin og allt ókeypis.
Í þetta skiptið mun Guðmundur B. Friðriksson kíkja í kaffi. Guðmundur er umhverfisverkfræðingur og skrifstofustjóri skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg. Hann hefur starfað að umhverfismálum hjá Reykjavíkurborg í rúm 20 ár og m.a. leitt breytingar á flokkun og sorphirðu í borginni. Guðmundur mun stikla á stóru um málefni sjálfbærar neyslu, sorphirðu og úrgangsstjórnunar.
Viltu vita meira um Fríbúðina?
Nánari upplýsingar veitir:
Atli Pálsson, sérfræðingur
atli.palsson@reykjavik.is | 411-6170