Ein áhrifamesta skáldsaga síðari tíma. Hægt er að lesa hana sem hrollvekju, erótík eða reyfara. Makt myrkranna er fyrsta þýðing bókarinnar úr ensku, gerð um 1900 af Valdimari Ásmundssyni, sem á sinni tíð var talinn einn af bestu pennum landsins. Dr. Ásgeir Jónsson ritar fróðlegan eftirmála um tilurð og áhrif bókarinnar. (Heimild: Bókatíðindi)