Information about the event
Glæpafár á Íslandi | Yrsa Sigurðardóttir situr fyrir svörum
Hefur þú áhuga á glæpaskrifum?
Borgarbókasafnið efnir til ritsmiðju í glæpasagnaskrifum í tilefni af dagskránni Glæpafár á Íslandi. Rithöfundur, Yrsa Sigurðardóttir, kíkir í heimsókn í lok smiðjunnar, spjallar um eigin skrif og situr fyrir svörum jafnt nemenda sem annarra áhugasamra gesta.
Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og leiðbeinandi stýrir umræðum.
Viðburðurinn er hluti af dagskránni Glæpafár á Íslandi sem haldin er í samstarfi við Hið íslenska glæpafélag, sem fagnar 25 ára afmæli í ár.
Vekjum jafnframt athygli á að rithöfundurinn Skúli Sigurðsson situr fyrir svörum laugardaginn 21. september, en hann hlaut Blóðdropann fyrir frumraun sína, Stóra bróður, árið 2022.
Öll velkomin og aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar veita:
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is
Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og leiðbeinandi
sunnadis@gmail.com