Skúli Sigurðsson situr fyrir svörum
Skúli Sigurðsson situr fyrir svörum

Information about the event

Time
13:15 - 14:15
Price
Free
Target
Adults
Language
Íslenska
Past Events

Glæpafár á Íslandi | Skúli Sigurðsson spjallar um glæpaskrif

Saturday September 21st 2024

Hefur þú áhuga á glæpaskrifum? 

Borgarbókasafnið efnir til ritsmiðju í glæpasagnaskrifum í tilefni af dagskránni Glæpafár á Íslandi.  Hinn rómaði og margverðlaunaði höfundur, Skúli Sigurðsson, kíkir í heimsókn eftir smiðjuna, spjallar um eigin skrif og situr fyrir svörum jafnt nemenda sem annarra áhugasamra gesta. Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og leiðbeinandi stýrir umræðum. 

Viðburðurinn er hluti af dagskránni Glæpafár á Íslandi sem haldin er í samstarfi við Hið íslenska glæpafélag, sem fagnar 25 ára afmæli í ár. 

Öll velkomin og aðgangur er ókeypis.

Verkefnið Glæpafár á Íslandi er styrkt af Bókasafnasjóði.

Viðburður á Facebook


Nánari upplýsingar veita:

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is

Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og leiðbeinandi
sunnadis@gmail.com