TINNA

Information about the event

Time
All day
Price
Free
Target
Everyone
Language
-
Exhibitions

Sýning | Draumar og veruleiki: TINNA

Saturday June 6th 2026 - Friday August 7th 2026

Hversdagsleikinn í sínum fjölbreytilegu birtingarmyndum mætir draumum okkar: æsku, nútíð og framtíð.

TINNA er virkniúrræði fyrir unga, einstæða foreldra á vegum Reykjavíkurborgar og félags­ og húsnæðis­mála ráðuneytisins. Í TINNU sækja þátttakendur ýmsa virkni og hafa m.a. unnið saman að listsköpun í hópi undir handleiðslu myndlistarkennarans Fríðu Maríu Harðardóttur frá árinu 2020.
Fyrsta sýning TINNU­ hópsins var haldin árið 2021 í Fjölskyldumiðstöðinni í Gerðubergi en sex sýningar hafa verið haldnar síðan samstarfið hófst. Samsýningin Draumar og veruleiki er afrakstur TINNU-­hópsins þar sem ungar konur hafa unnið að því að tengjast sjálfum sér og öðrum konum í gegnum sköpun myndlistar.

Þær fengu fræðslu, kynntu sér efni og að­ferðir, fengu þjálfun í tækni, gerðu æfingar út frá skynjun og samtali, virkjuðu forvitnina og ímyndunaraflið og fundu farveg fyrir persónulega tjáningu. Ekki síst fengu þær tækifæri til að upplifa listsköpun sem heilandi ferli.

Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík.

 

Nánari upplýsingar veitir: 
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur 
svanhildur.halla.haraldsdóttir@reykjavik.is | 411-6170