
Information about the event
Time
20:00 - 21:30
Price
Free
Library
Target
Everyone
Language
english
Literature
Kvöldganga á ensku | Armchair Travel
Thursday July 3rd 2025
Armchair Travel: Walking Reykjavík in Contemporary Writing
Larissa Kyzer, þýðandi, leiðir bókmenntagöngu um Reykjavík eins og hún birtist í íslenskum samtímabókmenntum. Gengið verður um borgina og lesið upp úr skáld- og fræðiritum þar sem borgin sjálf leikur stórt hlutverk. Þátttakendur fá innsýn í hvernig höfundar mála lifandi myndir af borginni með orðum. Gangan fer fram á ensku.
Gangan hefst við Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagötu 15 og tekur um 1 og ½ klukkustund.
Gangan er hluti af viðburðaröðinni Kvöldgöngur en að henni standa Borgarsögusafn, Borgarbókasafn, Listasafn Reykjavíkur og Reykjavík Bókmenntaborg Unesco. Göngurnar fara fram á fimmtudögum yfir sumarmánuðina. Kvöldgöngurnar eru gjaldfrjálsar og öll eru hjartanlega velkomin.