Information about the event

Time
15:30 - 17:30
Price
Free
Target
Young people
Ages
12 - 16 ára
Language
íslenska
Children
Language
Young people

Ritsmiðja | Viltu skálda og bæta orðaforða þinn?

Monday February 10th 2025

Í ritsmiðjunum verður kennd íslenska í gegnum skapandi skrif. Þemað er veislur, ferðalög, vinátta, tíska og óvæntir atburðir. Þátttakendur lesa örsögur í tíma og ræða efni þeirra. Síðan verður nemendum leiðbeint við ritun einfalds texta á íslensku. Þeir sem vilja geta deilt textum sínum í lok hverrar ritsmiðju og þegar allar fjórar smiðjurnar eru búnar verður upplestrarviðburður.

Ritsmiðjurnar er ætlaðar krökkum á aldrinum 12-16 ára sem langar til þess að bæta orðaforða sinn, leika sér með tungumálið og þjálfa sig í skapandi skrifum. Skemmtilegur og spennandi orðaforði verður lagður inn, unnið með efni líðandi stundar og orðasambönd og nýyrðasmíð. Hægt er að sækja eina eða fleiri smiðjur þar sem hver og ein er kennd sem sjálfstæð eining. 

Boðið er upp á fjórar ritsmiðjur:

Borgarbókasafnið Grófinni - mánudagana 3. og 10. febrúar frá kl. 15:30 - 17:30
Borgarbókasafnið Kringlunni - þriðjudagana 11. og 18. febrúar frá kl. 15:30 - 17:30

Ritsmiðja #1 - Grófinni 3. febrúar
Ritsmiðja #2 - Grófinni 10. febrúar
Ritsmiðja #3 - Kringlunni 11. febrúar
Ritsmiðja #4 - Kringlunni 18. febrúar

Hámarks fjöldi á hverju námskeiði: 12 þátttakendur.
Þátttaka er ókeypis en skráning nauðsynleg. Hægt er að skrá sig hér fyrir neðan.

Berglind Erna Tryggvadóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir leiða námskeiðið. Þær eru rithöfundar og íslenskukennarar, auk þess sem þær semja námsgögn í íslensku.

Sjá yfirlitssíðu verkefnisins
 

Viðburður á Facebook
 

Nánari upplýsingar veita:

Berglind Erna Tryggvadóttir
berglinderna12@gmail.com

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115