Ungmenni
FELLUR NIÐUR Í DAG - Klúbbur | Anime fyrir 13-16 ára
Miðvikudagur 2. nóvember 2022
Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 13-16 ára sem hafa brennandi áhuga á Anime.
Við hittumst í Gerðubergi og erum alltaf eitthvað að bralla. Það er til dæmis hægt að gera merki, spila borðspil, cosplay, spjalla um anime svo eitthvað sé nefnt. Svo verða að sjálfsögðu skipulagðar bíósýningar, teiknismiðjur, kynningar á Anime bókum og bara hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera!
Leiðbeinendur klúbbsins eru frá Íslenska myndasögusamfélaginu og Borgarbókasafninu og við leggja okkur sérstaklega fram að taka vel á móti öllum og okkar mottó er að það sé hvergi pláss fyrir fordóma.
Það er auðvitað ekkert þátttökugjald en gott að skrá sig. Vinsamlegast sendið: Nafn, netfang og símanúmer til holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir Verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is