Um þennan viðburð

Tími
10:00 - 17:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Markaður

Vekjum vorið | Leynist sumargjöfin þín í Fríbúðinni?

Laugardagur 18. apríl 2026

Nú er sumardagurinn fyrsti er á næsta leyti. Kannski gæti hin fullkomna sumargjöf leynst í Fríbúðinni!
Það er hægt að gefa vel með farin leikföng  í Fríbúðina og kannski finnur þú sumargjöf fyrir þig og þína á móti. 

Viðburðurinn er hluti af vorhátíð Fríbúðarinnar í Gerðubergi: Vekjum vorið. Með hátíðinni erum við að fagna hringrásinni og í boði eru viðburðir sem tengjast hinum ýmsu vorverkum.

Í Fríbúðinni í Gerðubergi eru allir hlutir ókeypis, þangað er hægt að koma með hluti í góðu ástandi sem nýtast ekki lengur og taka heim með sér það sem vantar. 

Viltu vita meira um Fríbúðina? 

 

Nánari upplýsingar veitir: 
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur 
svanhildur.halla.haraldsdóttir@reykjavik.is | 411-6170