
Um þennan viðburð
Leikhúskaffi | Niflungahringurinn allur
Leiksýningin Niflungahringurinn allur verður frumsýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins þann 24.október næstkomandi. Hundur í Óskilum tekst á hendur að færa Íslendingum í fyrsta sinn allan Niflungahring Richards Wagners – eins og hann leggur sig. Leikhúskaffið er skemmtilegur viðburður fyrir öll sem hafa áhuga á leikhúsi og hefst á Borgarbókasafninu Kringlunni þar sem Ágústa Skúladóttir leikstjóri og Hjörleifur Hjartarson höfundur og leikari segja frá sýningunni. Í kjölfarið verður farið samferða yfir á Nýja svið Borgarleikhússins þar sem leikmyndin verður skoðuð og boðið upp á umræður og spurningar fyrir áhugasama.
Gestum leikhúskaffis býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna. Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum.
Öll eru hjartanlega velkomin!
Um sýninguna:
Stórvirki listasögunnar dregin saman í tveggja tíma hláturskast!
Enn og aftur eru þeir mættir í Borgarleikhúsið. Hundur í óskilum ríður aldrei vafurlogann þar sem hann er lægstur. Síðast fór hann flikkflakk og heljarstökk í öllum herklæðum í gegnum Njálu á hundavaði. Nú tekst hann á hendur að færa Íslendingum í fyrsta sinn allan Niflungahring Richards Wagners - eins og hann leggur sig.
Þetta epíska stórvirki sem tónskáldið samdi upp úr íslenskum fornaldarsögum eru fjórar óperur: Rínargullið, Valkyrjan, Sigurður Fáfnisbani og Ragnarök og tekur að jafnaði jafn mörg kvöld í flutningi. En Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson ásamt Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur geisast með himinskautum í gegnum allt verkið á einni kvöldstund og má með sanni fagna því að loksins, loksins sé Niflungahringurinn allur kominn heim - á sjálfa sögueyjuna.
Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir en um leikmynd og búninga sér Þórunn María Jónsdóttir.