
Um þennan viðburð
Cynotype smiðja með Andreu Valgerði
Andrea Valgerður leiðir sólarprent smiðju (e. cyanotype) á Borgarbókasafninu í Kringlunni. Smiðjan hentar vel fyrir byrjendur og er opin öllum sem vilja prófa þessa tækni. Smiðjan er ókeypis.
Andrea er myndlistarkona frá Ísafirði sem vinnur með texta, teikningu, ljósmyndun, prent og fundið efni. Í verkum sínum fæst hún við hversdagsleikann og hið persónulega, og nýtir gjarnan skissubækur og ólíkar myndrænar aðferðir til að skoða minningar, umhverfi og efniskennd.
Hún lauk BA-gráðu í myndlist árið 2021 og útskrifast í vor með meistaragráðu í listkennslu. Andrea hefur áður haldið cyanotype-námskeið fyrir bæði börn og fullorðna og leggur áherslu á að skapa aðgengilegt og skapandi rými þar sem þátttakendur geta kynnst tækninni í gegnum tilraunir, leik og eigin myndvinnslu.
Sólarprent (e. cyanotype) er meðal elstu og einföldustu ljósmyndaaðferða en þar er sólarljós (eða útfjólublátt ljós) notað til að framkalla mynd. Ljósnæmur vökvi er málaður á myndflöt svo sem pappír eða bómull sem svo er þurrkaður. Þurrkaðar jurtir, úrklippur, pappír og fleira eru lögð ofan á myndflötinn og móta þannig myndverkið. Þá er myndverkið lýst með UV ljósi. Ljósmyndin er svo framkölluð með köldu vatni og sett í þurrk.
Öll velkomin.
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður María Bjarnardóttir, sérfræðingur
holmfridur.maria.bjarnardottir@reykjavik.is | 411 6202
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204