
Um þennan viðburð
Vinnustofa | Kærleiksbréf
Hverjum eða hverju langar þig að skrifa kærleiksbréf? Æskuminningu? Langar þig að skrifa til staðar sem þú hefur heimsótt? Golunnar sem snerti vanga þinn? Manneskju sem þú saknar? Þín, í framtíð eða fortíð?
Vertu með í samvinnuverkefni í haust. Við munum verja tíma saman, skoða orð sem tákna kærleika á mismunandi tungumálum og tala um hluti, staði og fólk sem okkur þykir vænt um. Við munum huga hvert að öðru, búa til pappír úr gömlum bókum, finna upp á nýjum orðum og skrifa kærleiksbréf; skapa nýjar hugmyndir með gömlum hlutum.
Allur efniviður verður á staðnum, skráning er óþörf og þátttakendum frjálst að mæta eins oft og þeir vilja. Öll velkomin óháð aldri og tungumáli!
21. september | Kærleiksbréf #1
12. október | Kærleiksbréf #2
9. nóvember | Kærleiksbréf #3
14. desember | Kærleiksbréf #4
Nánari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is