A mockup of alphabet beads and other colorful beads.

Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Föndur

Tilbúningur | Perluarmbönd

Miðvikudagur 8. maí 2024

Búum til armbönd úr perlum!

Mættu á Tilbúning í Spönginni og föndraðu perluarmbönd með okkur. Stafaperlur, litríkar kúluperlur og fallegar skrautperlur verða í boði. Yngri börn ættu að vera í fylgd fullorðinna sem geta aðstoðað þau við flóknari fínhreyfingar.

Viðburðurinn er viðeigandi fyrir fólk á öllum aldri, og við hvetjum fullorðið fólk sérstaklega til að leyfa sér að taka þátt og vera skapandi, óháð „listrænum hæfileikum“. Áhöld og efniviður verða á staðnum, en þér er velkomið að taka pennaveskið með! Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.

Tilbúningur fer fram á Borgarbókasafninu í Spönginni á fyrsta miðvikudegi hvers mánaðar, og á Borgarbókasafninu í Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar.

Viðburðurinn á facebook.

Nánari upplýsingar veitir:
Védís Huldudóttir | Sérfræðingur
vedis.huldudottir@reykjavik.is | ✆ 411-6237