Several button badges, some colour pencils, a small pencil, an eraser.

Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
íslenska, english
Föndur

Tilbúningur | Barmmerki

Miðvikudagur 7. maí 2025

Búðu til barmmerki með okkur!

Hannaðu þína eigin nælu og sýndu lit, hvort sem það er hljómsveit, íþróttafélag, pride fáni — eða bara lítið listaverk. Áhöld og efniviður verða á staðnum.

Viðburðurinn er viðeigandi fyrir fólk á öllum aldri, og við hvetjum fullorðið fólk sérstaklega til að leyfa sér að taka þátt og vera skapandi, óháð „listrænum hæfileikum“. Áhöld og efniviður verða á staðnum, en þér er velkomið að taka pennaveskið með! Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.

Viðburðurinn fer fram á jarðhæð, og það er aðgengilegt salerni nokkra metra frá. Efri hæð safnsins er aðgengileg með lyftu.

Tilbúningur fer fram á Borgarbókasafninu í Spönginni á fyrsta miðvikudegi hvers mánaðar, og á Borgarbókasafninu í Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar.

Viðburðurinn á facebook.

Nánari upplýsingar veitir:
Védís Huldudóttir | Sérfræðingur
vedis.huldudottir@reykjavik.is | 411-6244 ✆