
Um þennan viðburð
Lopi og Orð
Langar þig að hitta aðra prjónaáhugamenn og æfa þig í íslensku í afslappaðri stemningu? Ert þú íslenskumælandi sem elskar handverk, vilt hitta nýtt fólk og deila prjónaþekkingu þinni með öðrum? Hér geturðu deilt sögum, ráðum og hitt fólk á meðan þú efla tungumálakunnáttu þína!
Lopi og Orð er notaleg samkoma þar sem allir sem hafa gaman af handverki eins og prjóni, hekli eða sauma og hafa grunnþekkingu í íslensku eru velkomnir. Hugmyndin á bak við viðburðinn er að skapa rými þar sem íslenskunemendur geta æft sig í færni sinni og tengst íslenska menningu í afslappaðri og notalegri stemningu.
Þó að enska sé leyfð er íslenska sem aðal samskiptaleið mjög hvött fyrir þátttakendur á öllum stigum, eða að minnsta kosti stöðuga notkun á íslenskum orðum. Á sama hátt er gert ráð fyrir að þátttakendur sýni þolinmæði við þá sem eru enn að þróast í íslensku en eru að gera sitt besta.
Við munum hafa kaffi fyrir alla, prjónauppskriftir og orðaforðablað.
Íslenskumælandi eru einnig hvattir til að vera með okkur, spjalla við þátttakendur og deila prjónaþekkingu sinni með öðrum.
Við hittumst á tveggja vikna fresti á sunnudögum kl. 15:00 til 16:30 á annarri hæð Grófarinnar.
Þessi viðburður er á vegum Huldumáls, félag stúdenta í Íslensku sem öðru máli.
Hafa samband við: huldumal@hi.is
Fyrirvari: Allir textarnir eru þýddir af nemendunum í Íslensku sem öðru mál, ef eitthvað er óljóst eða ekki skynsamlegt endilega sendið okkur tölvupóst eða lesið upplýsingar á ensku.