
Um þennan viðburð
Sýning | Samkennd og Samfélag
Hvað er samfélag? Hvaðan kemur samkenndin, úr hjartanu, líkamanum eða heilanum?
Verið hjartanlega velkomin á listasýningu leikskólanna á Barnamenningarhátíð í Gerðubergi. Þema Barnamenningarhátíðar í ár er samkennd og samfélag og hafa börn á leikskólum í Breiðholti kafað ofan í þemað saman. Út frá samtölum og samvinnu hafa börnin á öllum deildum skólanna skapað saman verk sem verða til sýnis á bókasafni Gerðubergs.
Leikskólarnir sem taka þátt eru Holt, Jöklaborg, Ösp, Hólaborg, Hálsaskógur, Vinaminni, Hraunborg, Bakkaborg, Borg, Seljakot, Suðurborg og Krílasel.
Opnunarviðburður verður miðvikudaginn 22. Apríl kl 13:30 og stendur sýningin yfir á bókasafni Gerðubergs fram yfir Barnamenningarhátíð.
Júlíanna Ósk Hafberg er sýningarstjóri.
Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | 868 1851