
Um þennan viðburð
BIG BANG tónlistarhátíð
Verið velkomin á BIG BANG tónlistarhátíð!
Í Borgarbókasafninu Gerðubergi verður líf og fjör á sumardaginn fyrsta. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá sem er hluti af Big bang tónlistarhátíðinni sem fer fram í Tónskóla Sigursveins í Hraunbergi 2 og í Gerðubergi.
Á síðu barnamenningarhátíðar má sjá heildardagskrá BIG BANG.
Dagskrá í Gerðubergi
Berg
11:30-11:55 – Árstíðir
12:30-13:00 – Bernskubrek
13:30-13:55 – Árstíðir
14:30-15:00 – Bernskubrek
15:15-15:40 - Árstíðir
Bókasafnið
13:00-15:00 - Tónlistarföndur
BIG BANG er evrópsk tónlistarhátíð fyrir ungt fólk sem fá að upplifa fjölbreytta og metnaðarfulla efnisskrá er samanstendur af tónleikum, innsetningum og tónlistartengdum smiðjum undir handleiðslu fagfólks í tónlist.
Sérstök áhersla er lögð á tónlistarfólk og tónskáld sem sjá ævintýrið í tónlistarsköpun sinni og vilja leita frjórra leiða til að kynna tónlist fyrir börnum og deila með þeim sviðinu.
Tengiliður Borgarbókasafnsins:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir
verkefnastjóri barna- og unglingastarfs - lestrarhvatning og fræðsla
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146