
Um þennan viðburð
Fjölskyldumorgnar | Krílastundir í Úlfarsárdal
Fjölskyldumorgnarnir eru notalegar og óformlegar samverustundir í Krílahorninu. Þar myndast gott tækifæri til að kynnast öðrum fullorðnum með ungviði og skiptast á sögum um lífið, tilveruna og auðvitað börnin.
Það er heitt á könnunni fyrir þau fullorðnu og pelahitari á staðnum. Góð skiptiaðstaða er á salerni hússins.
Bókasafnið á mikið til af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna. Hægt er að glugga í efnið á staðnum og korthafar geta fengið það lánað heim. Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum, til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!
Hittumst í Krílahorninu!
Allir fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafninu.
Kynnið ykkur barnadeildir Borgarbókasafnsins.
Nánari upplýsingar:
Vala Björg Valsdóttir, sérfræðingur
vala.bjorg.valsdottir@reykjavik.is | 411 - 6270