Um þennan viðburð

Tími
12:00 - 14:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
Íslenska
Börn
Ungmenni

Ævintýrahöllin | Sundteiknismiðja með Rán Flygenring

Laugardagur 25. apríl 2026

Rán Flygenring býður sundlaugaáhugafólki á öllum aldri að teikna allt það sem býr yfir og undir yfirborðinu: Sundfólk og kafara, krakka með kúta og ósýnilegar hafmeyjar, heitapottorma og týndar sundbuxur. Gestum er síðan boðið að fylla sameiginlega risalaug af lífi svo úr verði ein ævintýraleg skringisundlaug.

Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur  ókeypis. 

Á vef Barnamenningarhátiðar er að finna heildardagskrá hátíðarinnar sem verður um alla borg.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is |  868 1851