
Um þennan viðburð
Tími
14:30 - 15:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
öll tungumál velkomin
Börn
Ungmenni
Ævintýrahöllin | Dans Brynju Péturs
Sunnudagur 26. apríl 2026
Dans Brynju Péturs verður á staðnum með Hiphop danssýningu og beint í kjölfarið Hiphop danskennslu fyrir alla fjölskylduna. Öll velkomin! Atriði sem fara á svið í Ævintýrahöllinni eru meðal annars siguratriði á öllum aldri frá innanhúss danskeppni skólans Level Up! ásamt yngri sýningarhóp.
Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur ókeypis.
Á vef Barnamenningarhátiðar er að finna heildardagskrá hátíðarinnar sem verður um alla borg.
Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | 868 1851