
Um þennan viðburð
Ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir | Hryllingsflóðið!
Við bjóðum gestum að koma, hlýða á erindi og taka þátt í umræðum um hlutverk og stöðu bókmennta fyrir börn og ungmenni í dag.
Í ár beinum við sjónum okkar að hryllingsbókmenntum fyrir börn og unglinga. Frá örófi alda höfum við skemmt okkur og börnunum með hryllingssögum. Í seinni tíð, með innkomu hrekkjavöku í íslenskt menningarlíf, hefur áhuginn fyrir ýmiskonar hryllingi náð nýjum hæðum hjá börnum og unglingum og að hausti skellur á okkur hryllingsflóðið í útgáfu barna- og unglingabókmennta.
Ráðstefnan er samstarfsverkefni Félags fagfólks á skólasöfnum, IBBY, SFS, Síung, Upplýsingar og Borgarbókasafnsins. Ókeypis er á stefnuna en við biðjum gesti að skrá þátttöku sína hér fyrir neðan.
Dagskrá:
10:30-10:40 Elísabet Thoroddsen rithöfundur og fundarstjóri, setur ráðstefnuna
10:40-11:10 Arngrímur Vídalín, skrímslafræðingur og dósent í íslenskum bókmenntum fyrri alda – Hryllingssögur handa börnum frá Grænu höndinni til samtímans
11:10—11:40 Hilmar Örn Óskarsson, rithöfundur – Hvernig (voða)gerðist þetta? – skyggnst á bak við tjöldin í Voðagerði
11:40-12:24 Hádegishlé
12:40-13:10 Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur – Hryllilega fyndið
13:10-13:40 Bergrún Íris Sævarsdóttir, rithöfundur og teiknari – Má þetta bara? Blóð, ofbeldi og erótík fyrir unglinga
Viðburður á Facebook
Ráðstefnan er ókeypis og opin öllum og verður einnig sýnd í beinu streymi á Facebook síðu Borgarbókasafnsins.
Nánari upplýsingar um árlegu barna- og unglingabókaráðstefnuna í Gerðubergi
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146