Aðventuupplestrar

Bókajól á Borgarbókasafninu 

Njóttu aðventunnar með okkur á Borgarbókasafninu! 

Hvernig hljómar að taka frí frá áreiti og neyslu og setjast niður með heita súpu eða kakóbolla og hlusta á rithöfunda lesa upp úr glænýjum bókum, í notalegu umhverfi bókasafnsins? Það hljómar eins og draumur – jóladraumur er það ekki? En þetta er satt!

Borgarbókasafnið býður upp á aðventuupplestra á öllum söfnum sínum, með mismunandi þema. Þrír höfundar lesa upp á hverjum stað og boðið er upp á heitt kakó eða heita súpu, eftir því hvort lesið er upp í hádeginu eða eftirmiðdaginn.

 

Dagskráin er svohljóðandi:

30. nóvember | Borgarbókasafnið Spönginni

kl. 12:00 - 13:00

Söguleg skrif
Guðjón Friðriksson : Börn í Reykjavík
Guðrún Jónína Magnúsdóttir : Rokið í stofunni
Valur Gunnarsson : Berlínarbjarmar

Boðið verður upp á heita súpu og brauð

 

30. nóvember | Borgarbókasafnið Úlfarsárdal

kl. 14:30-15:30

Barnadagskrá
Þórarinn Eldjárn : Hlutaveikin og Dótarímur
Rán Flygenring : Tjörnin
Kristín Helga Gunnarsdóttir : FíaSól í logandi vandræðum

 

7. desember | Borgarbókasafnið Sólheimum

kl. 12:00 - 13:00

Skáldævisögur
Guðrún Eva Mínervudóttir : Í skugga trjánna
Elísabet Jökulsdóttir : Límonaði frá Díafaní
Þórdís Þúfa : Þín eru sárin

Boðið verður upp á heita súpu og brauð
 

8. desember | Borgarbókasafnið Árbæ

kl. 14:00 - 15:00

Ævisögur
Kristín Svava Tómasdóttir : Duna
Bragi Ólafsson : Innanríkið - Alexíus
Auður Styrkárs : Kona á buxum

Boðið verður upp á heitt kakó

14. desember | Borgarbókasafnið Gerðubergi

kl. 14:00 - 15:00

Vinátta
Tómas Ævar Ólafsson : Breiðþotur
Brynja Hjálmsdóttir : Friðsemd
Jónas Reynir Gunnarsson : Múffa

Boðið verður upp á heitt kakó
 
 

15. desember | Borgarbókasafnið Grófinni

kl. 12:00 - 13:00 

Samtíminn
Sunna Dís Másdóttir : Kul
Þórdís Gísladóttir : Aðlögun
Halldór Armand Ásgeirsson : Mikilvægt rusl

Boðið verður upp á heita súpu og brauð

 

Viðburðirnir eru ókeypis og öllum opnir!
Njóttu skáldskapar, fræða, hugmynda, innblásturs og samveru á aðventunni.

Ekki láta þig vanta á Borgarbóksafninu!

Flokkur
UppfærtMánudagur, 25. nóvember, 2024 13:52