Um þennan viðburð
Opnum nýju orðabókina okkar + opinn mæk
Við opnum orðabókina okkar sem inniheldur ótal ný íslensk orð.
Upplestur á nýjum íslenskum orðum sem tilheyra Kærleiksorðræðu - verkefni sem leggur áherslu á upplifun, tilfinningalæsi og eignarhald á tungumálinu.
Opinn mæk að loknum upplestri - öllum er velkomið að lesa upp sín eigin orð og leggja til Kærleiksorðræðunnar!
Við viljum skapa vettvang til að ræða það sem er okkur kært – upplifun okkar af samskiptum og orðunum sem við viljum heyra og segja. Kærleiksorðræða er verkfæri til að þróa opnara málsamfélag og virðingarfyllri samskipti. Ljóst er að birtingarmyndir hatursorðræðu eru margar í okkar samfélagi og afleiðingarnar alvarlegar. Ein af afleiðingum hatursorðræðu er að fólk dragi sig út úr opinberri umræðu. Borgarbókasafnið vill skapa vettvang þar sem fjölbreyttir hópar fá tækifæri til að tjá sig um eigin reynslu með eigin hætti – þitt mál er mitt mál. Íslenskan er mál okkar allra rétt eins og baráttan gegn hatursorðræðu og fyrir meiri kærleik í samskiptum.
Frekari upplýsingar veitir:
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is