Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
10+
Tungumál
Íslenska
Börn
Föndur

Haustfrí | Perlur og Morskóði

Fimmtudagur 24. október 2024

Morskóði er samskiptamáti þar sem mislöng hljóð, ljósmerki eða önnur tákn eru notuð í stað bókstafa og tölustafa. Í þessari smiðju verða það perlur sem koma í staðinn fyrir bókstafi og tölustafi. Anna Júlía Friðbjörnsdóttir myndlistarkona kennir okkur að skrifa skilaboð og setningar í morskóða, þræða perlur á band og fela þannig skilaboð í hálsfestum, armböndum og óróum.

Anna Júlía Friðbjörnsdóttir er myndlistarmaður starfandi í Reykjavík. Hún vinnur þvert á miðla og velur efni og aðferðir út frá eðlislægum eiginleikum og menningarlegu samhengi í verkum sem taka mið af samtíma og sögu.

Ókeypis aðgangur!

Kynnið ykkur heildardagskrá Borgarbókasafnsins í haustfríinu!

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar veitir:

Vala Björg Valsdóttir, sérfræðingur

vala.bjorg.valsdottir@reykjavik.is | 411 6270