Anna Sigríður Helgadóttir og Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Anna Sigríður Helgadóttir og Aðalheiður Þorsteinsdóttir

Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 14:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Liðnir viðburðir

100 ára afmæli | Vorsöngur með Önnu Siggu og Öllu

Sunnudagur 16. apríl 2023

Söngurinn mun óma um bókasafnið þegar þær stöllur, Anna Sigga og Alla, mæta á svæðið og syngja og spila í tilefni af 100 ára afmæli Borgarbókasafnsins.

Sungin verða valin lög sem fjalla um vorið sem er á næsta leyti og gefur okkur von um bjarta og betri framtíð.

Anna Sigríður Helgadóttir, söngkona og Aðalheiður Þorsteinsdóttir, píanóleikari, eru vel þekktar á Borgarbókasafninu Árbæ þar sem þær hafa í nokkur misseri leitt söng með söngelskum notendum bókasafnsins.

Öll hjartanlega velkomin og aðgangur að sjálfsögðu ókeypis!

Smellið hér til að skoða afmælisdagskrána í Borgarbókasafninu Árbæ.

Smellið hér til að skoða afmælisdagskrána í öllum söfnum okkar helgina 15. og 16. apríl.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | 411 6250