
Um þennan viðburð
Ævintýrahöllin I Blaðrarinn kemur í heimsókn
Blaðrarinn kemur í Ævintýrahöllina!
Farið verður yfir hverning á að gera þrjú blöðrudýr á skemmtilegan og einfaldan hátt og endum á blöðruhattabrjálæði þar sem þau gera eins rosalega hatta og þau geta eða láta ímyndunaraflið ráða hvað þau gera á meðan þau fá hjálp frá reyndum blöðrulistamönnum. Hvert barn má taka blöðrurnar heim með sér sem endast í daga eða jafnvel vikur.
Tvær smiðjur í boði. Kl 13 og kl 14
Hentar vel fyrir 7-12 ára, líka yngri en þau þurfa yfirleitt hjálp frá foreldrum.
Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur ókeypis.
Á vef Barnamenningarhátiðar er að finna heildardagskrá hátíðarinnar sem verður um alla borg.
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | s. 868 1851