
Um þennan viðburð
Ævintýrahöllin | Fjölskyldujóga
Vertu velkomin í hlýlega fjölskylduyogastund fyrir allan aldur þar sem við gerum aðgengilegar upphitunaræfingar, öndun, tökum þátt í ævintýri sem tengist yogastöðum og góðri slökun í lokin með fallegum mildum hljómum sem róa hugann. Arnbjörg Kristín er yogakennari og hljóðheilari með BS í Iðjuþjálfun og er sem stendur í MA námi í Heilbrigðisvísindum og finnst fátt skemmtilegra en hreyfing, yoga og gleðifylltar ævintýrastundir.
Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur ókeypis.
Á vef Barnamenningarhátiðar er að finna heildardagskrá hátíðarinnar sem verður um alla borg.
Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | 868 1851