
Stuttlisti Alþjóðlegu Booker-bókmenntaverðlaunanna 2026
Stuttlisti Alþjóðlegu Booker-bókmenntaverðlaunanna 2026 var tilkynntur 31. mars. Á listanum eru sex verk eftir höfunda frá átta þjóðlöndum sem skrifa á þýsku, búlgörsku, brasilískri-portúgölsku, frönsku og mandarín-kínversku. Fimm af sex höfundum verkanna eru konur og fjórir af sex þýðendum. Bækurnar voru valdar úr 13 tilnefndum bókum af langlista.
Á meðal tilnefndra bóka í ár eru tvær frumraunir (The Nights Are Quiet in Tehran og She Who Remains) og ein þeirra kom út á frummálinu fyrir 30 árum (The Witch). Auk þess eru tveir rithöfundar og þýðendur sem áður hafa verið tilnefndir til verðlaunanna, Daniel Kehlmann og Ross Benjamin sem voru tilnefndir 2020 og Marie Ndiaye og Jordan Stump sem voru tilnefnd 2016.
Bókmenntaverkin sex spanna tíma, lönd og heimsálfur. Verkin flytja lesandann frá Taiwan undir stjórn Japan á fjórða áratug tuttugustu aldar yfir til Evrópu undir nasistum í seinni heimsstyrjöld. Við lesum um galdra og hversdagslíf í úthverfum borga í Frakklandi á tíunda áratugnum; ringulreið og eftirverkan írönsku byltingarinnar árið 1979; kynnust harðneskjulegum fangelsisnýlendum í afskekktum byggðum Brasilíu og ströngu feðraveldi í albönsku ölpunum.

Eftirfarandi verk prýða stuttlista verðlaunanna 2026:
The Nights Are Quiet in Theran eftir Shida Bazyar. Ruth Martin þýddi úr þýsku.
She Who Remains eftir Rene Karabash. Izidora Angel þýddi úr búlgörsku.
The Director eftir Daniel Kehlmann. Ross Benjamin þýddi úr þýsku.
On Earth As It Is Beneath eftir Ana Paula Maia. Padma Viswanathan þýddi úr brasilískri portúgölsku.
The Witch eftir Marie Ndiaye. Jordan Stump þýddi úr frönsku.
Taiwan Travelouge eftir Yáng Shuāng-zǐ. Lin King þýddi úr mandarín-kínversku.
Frekari upplýsingar um stuttlistann má finna hér.
Tilkynnt verður um vinningshafa verðlaunanna 19. maí næstkomandi á verðlaunahátíð í Tate Modern listasafninu í London.
Hér fyrir neðan má finna þau verkanna á stuttlistanum sem til eru á Borgarbókasafni og Rafbókasafninu. Einnig er þar að finna önnur verk eftir tilnefnda höfunda sem til eru í söfnunum.