Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
öll tungumál velkomin
Börn

Vekjum vorið | Komdu út að leika!

Laugardagur 18. apríl 2026

Vorið er senn á enda og sumarið er rétt handan við hornið! 

Komdu út að leika! Búum til risasápukúlur, sippum og krítum listaverk á stéttina! 


Viðburðurinn er hluti af vorhátíð Fríbúðarinnar í Gerðubergi: Vekjum vorið. Með hátíðinni erum við að fagna hringrásinni og í boði eru viðburðir sem tengjast hinum ýmsu vorverkum. Í Fríbúðinni í Gerðubergi eru allir hlutir ókeypis, þangað er hægt að koma með hluti í góðu ástandi sem nýtast ekki lengur og taka heim með sér það sem vantar. 

Viltu vita meira um Fríbúðina? 
 

Nánari upplýsingar veitir: 
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur 
svanhildur.halla.haraldsdóttir@reykjavik.is | 411-6170