
Um þennan viðburð
Tilbúningur | Taupokar
Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær að njóta sín í góðum félagsskap?
Í þetta skipti ætlum við að skreyta taupoka. Þátttakendur fá öll sína tösku sem má skreyta eins hver vill. Það verða fatapennar á staðnum, ásamt ólíkum formum sem hægt er að teikna eftir. Þátttakendum mega einnig taka með eigin efnivið ef áhugi er fyrir.
Tilbúningur er viðburðaröð sem fer fram fyrsta fimmtudag hvers mánaðar í Borgarbókasafninu Úlfarsárdal frá kl. 15:30-17:30.
Eigum saman notalega stund, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinendur koma með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoða við tilbúninginn.
Tilbúningur hentar skapandi fólk á öllum aldri. Börn yngri en 10 ára komi í fylgd með forráðamanni.
Kostar ekkert og engin skráning.
Viðburður á Facebook.
Nánari upplýsingar veitir,
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is