Tónleikar Borgarbókasafninu Leifur Gunnarsson Ingibjörg Fríða
Dægurflugur í hádeginu með Ingibjörgu Fríðu og föruneyti

Um þennan viðburð

Tími
12:15 - 13:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Öll tungumál
Tónlist

Dægurflugur í hádeginu I Þegar líða fer að jólum

Föstudagur 19. desember 2025

Borgarbókasafnið Gerðubergi 
Föstudaginn 19. desember kl. 12:15-13:00 
Borgarbókasafnið Spönginni 
Laugardaginn 20. desember kl. 13:15-14:00 

Á jólatónleikum Dægurflugna verða flutt hátíðleg jólalög, ný og gömul og eitthvað við allra hæfi.

Fram koma Ingibjörg Fríða Helgadóttir söngkona, Leifur Gunnarsson á kontrabassa, Sunna Gunnlaugsdóttir píanóleikari og Scott McLemore slagverksleikari.

Í lok tónleikanna gefst gestum tækifæri til að syngja jólasálma með hljómsveitinni. 

Dægurflugur í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið stendur fyrir í samstarfi við Leif Gunnarsson kontrabassaleikara. Þar kemur fram margt af okkar helsta tónlistarfólki og á tónleikunum gefst Reykvíkingum tækifæri til að koma saman, hitta félaga, njóta tónlistar og spjalla við tónlistarfólkið eftir tónleika. 

Nánar um Ingibjörgu: https://www.instagram.com/ingibjorgfrida/

Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar er Leifur Gunnarsson.

Frítt er inn á tónleikana og eru öll hjartanlega velkomin. 

Nánari upplýsingar veita:  
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða 
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | 411 6106 
Leifur Gunnarsson, tónlistarmaður 
leifurgunnarsson@gmail.com