Myndasöguklúbburinn | 13-16 ára

Klúbburinn er í boði í Borgarbókasafninu Spönginni annan hvern þriðjudag kl. 16:00-17:30

Hvort sem þú hefur áhuga á að skapa þínar eigin myndasögur eða finnst bara gaman að lesa þær er pláss fyrir þig í myndasöguklúbbnum.

Myndasöguklúbburinn er lifandi og teygjanlegur klúbbur sem býður uppá möguleika á því að læra um myndasöguformið, kynnast nýjum myndasögum, læra/verða betri í að skapa þær, eða bara sitja úti í horni með nefið ofan í bók!

Leiðbeinandi er Védís Huldudóttir, teiknari og myndasögufræðingur.

Klúbburinn hittist í lesherberginu Friði á annarri hæð í bókasafninu. Þátttaka er ókeypis og það er öllum frjálst að mæta, en áhugasöm eru beðin um að skrá sig í gegnum skráningarformið hér að neðan. Forráðamenn verða settir á póstlista og fá áminningar og aðrar tilkynningar um starfið í gegnum hann.
Við hittumst sex sinnum á önninni:
12. sept., 26. sept., 10. okt., 24. okt., 7. nóv., og 21. nóv.

Nánari upplýsingar veitir:
Védís Huldudóttir, sérfræðingur
vedis.huldudottir@reykjavik.is | ✆ 411-6237

Skráðu þig í klúbbinn!