
Information about the event
Dægurflugur í hádeginu I Stiklað á stóru með hljómsveitinni Strengjum
Borgarbókasafnið Gerðubergi, föstudaginn 17. október kl. 12:15-13:00
Borgarbókasafnið Spönginni, laugardaginn 18. október kl. 13:15-14:00
Strengir er íslenskt þjóðlagatríó sem leikur fjölbreytta íslenska og erlenda tónlist frá ólíkum áratugum. Strengir hafa vakið lukku fyrir skemmtilegan flutning og fallegan samhljóm. Að þessu sinni er þemað íslensk lög frá árunum 1964-1998 eftir höfunda á borð við Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartansson, KK, Villa Vill o.fl.
Hljómsveitina skipa Bragi Árnason, Páll Sólmundur Eydal og Leifur Gunnarsson, en ásamt því að syngja fjölradda útsetningar leika þeir á gítara og kontrabassa.
https://www.instagram.com/strengirband/
Dægurflugur í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið stendur fyrir í samstarfi við Leif Gunnarsson kontrabassaleikara. Þar kemur fram margt af okkar helsta tónlistarfólki og á tónleikunum gefst Reykvíkingum tækifæri til að koma saman, hitta félaga, njóta tónlistar og spjalla við tónlistarfólkið eftir tónleika.
Markmiðið er fyrst og fremst að færa metnaðarfulla tónlist út í hverfi borgarinnar þannig að fólk geti notið hennar í eigin nærumhverfi og á eigin forsendum.
Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar er Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari.
Nánar um Leif hér: www.lgtonar.com
Frítt er inn á tónleikana og eru öll hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is I 868 1851
Leifur Gunnarsson, listrænn stjórnandi
leifurgunnarsson@gmail.com | 868 9048