Information about the event
Dægurflugur í hádeginu I Í dillandi sveiflu með Gretu Salóme
Borgarbókasafnið Gerðubergi 10. apríl kl. 12.15-13.00
Borgarbókasafnið Spönginni 11. apríl kl. 13.15-14.00
Fiðluleikrinn og tónlistarkonan Greta Salóme mun ásamt þeim Gunnari Hilmarssyni gítarleikara, Leifi Gunnarssyni bassaleikara og Óskari Þormarssyni trommuleikara leika lög til heiðurs Stéphane Grappelli og Django Reinhardt.
Á dagskránni verða lög eins og Tiger Rag, Minor Swing og Swing Guitars en einnig verða leikin dægurlög í "gypsy-djass" stílnum þar sem leifturhraðar laglínur á fiðluna fá að njóta sín og léttleikinn er í fyrirrúmi.
Greta Salóme hefur um árabil haft áhuga á stíl fiðluleikarans Grappelli og byrjaði ung að stúdera hann. Hún hefur sjálf sagt: ,,Til að spila eins og Grappelli þarf maður að snúa öllu á haus sem maður hefur lært í klassíkinni. Þá swingar maður."
Frítt er inn á tónleikana og eru öll hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar veita
Hólmfríður Ólafsdóttir, Verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is