Málverk eftir Ármann Kummer
Málverk eftir Ármann Kummer

Information about the event

Time
10:00
Price
Free
Language
Íslenska o.fl.
Exhibitions

Sýning  | Nýtt ljós, nýtt líf

Wednesday January 21st 2026 - Sunday March 29th 2026

Sýning á verkum Ármanns Kummer Magnússonar í Borgarbókasafninu Árbæ.

Ármann fæddist í Reykjavík árið 1981 en bjó á Hvolsvelli fyrstu fimm árin. Hann byrjaði að mála árið 2006 og er að mestu sjálfmenntaður. Hann stundaði nám í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ, Iðnskólanum, lýðháskóla o.fl.  

Ármann vinnur aðallega með olíu og akríl á striga ásamt því að gera skúlptúra. Einnig hefur hann gert skartgripi.  

Að sögn Ármanns þá hefur listsköpunin hjálpað honum mikið í andlegum veikindum sem hann hefur átt við að stríða og slegið á kvíðatilfinningu. Bæði vinnan við listaverkin og afraksturinn í eiginlegri og óeiginlegri merkinu er honum þannig hvatning. Hann er nokkuð skipulagður þegar hann hefst handa við sköpunina og hefur yfirleitt ákveðið liti og það helsta áður en hafist er handa. Málverk hans eru flest máluð með þéttum dökkum litum, þar sem ljósið skín þó í gegn. Sama er að segja um skartgripina og skúlptúrana, þar er efnisnotkunin áþreifanleg og þykk en samt léttleiki yfir verkunum.    

Ármann hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Á sýningunni eru akrílmálverk og skúlptúrar og stendur hún til 29. mars. 

 

Sýningin á facebook

 

Nánari upplýsingar

Ármann Kummer

armann.kummer@gmail.com

 

Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Árbæ

katrin.gudmundsdottir@reykjavík.is