Trjálundur eftir Dominique Ambroise
Trjálundur eftir Dominique Ambroise

Information about the event

Time
All day
Price
Free
Target
Everyone
Language
Öll
Exhibitions

Naglinn | Trjálundur

Monday June 2nd 2025 - Monday August 4th 2025

Málverkið Trjálundur eftir Dominique Ambroise er nú til sýnis á Naglanum, Borgarbókasafninu Sólheimum. Naglinn er heiti á sýningaröð í Borgarbókasafninu Sólheimum, þar sem hver sýning samanstendur af einu listaverki sem fengið er að láni úr Artótekinu (www.artotek.is). Eik Baldurs starfsmaður í Sólheimasafni valdi verkið að þessu sinni.

 

Dominique lauk kennaraprófi í Kanada og mastersgráðu í myndlist frá York University í Toronto árið 1984. Í gegnum árin hefur hún gegnt ýmsum störfum tengdum listum, þar á meðal rekstri á nýlistasafni, myndlistarkennslu á bæði framhalds- og háskólastigi og í fræðsludeild Listasafns Ontario. Hún hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt og fjölda hópsýninga, bæði hér á landi og erlendis. Verk hennar eru í einkasöfnum í Evrópu og Norður-Ameríku.

 

Með því að vinna út frá hljóðrænum og sjónfærum gögnum sem Dominique aflar á staðnum, dregur hún fram mun á uppbyggingu, birtu og andrúmi sem einkennir skóga í mismunandi löndum. Málverk hennar er af skógi og er það af góðri ástæðu þar sem að Dominique segir: „Skógur er efnisgerð loftslags, hann gefur okkur fyrirmyndir af formgerðum sem við nemum í æsku og gegna mikilvægu viðmiðunarhlutverki hjá okkur á fullorðinsárum.“

 

Áhugasöm geta keypt verk Dominique eða leigt það, en þá eignast viðkomandi verkið þegar það hefur verið greitt upp. Sé sýningarverkið keypt (eða leigt) má kaupandinn velja úr Artótekinu hvaða verk verður næst til sýnis á Naglanum.

 

Hægt er að leigja verkið á 7.000 kr. á mánuði eða kaupa á 224.000 kr.

 

Fyrir nánari upplýsingar um Artótekið, listamanninn eða verkið bendum við á heimasíðu Artóteksins: https://artotek.is/


Nánari upplýsingar veita:

Bryndís Ómarsdóttir
bryndis.omarsdottir@reykjavik.is | s. 411 6160

eða

Hólmfríður Gunnlaugsdóttir
holmfridur.gunnlaugsdottir@reykjavik.is | s. 411 6112