
Information about the event
Leikur að litum | Sýning
Helga Bogadóttir sýnir málverk
Á sýningunni eru málverk sem Helga hefur unnið að síðust ár. Þau eru af íslensku landslagi og dýrum en í þann rann sækir Helga innblástur.
Helga ólst upp í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þar sem hún var í nánum tengslum við náttúruna og tók þátt í öllum almennum bústörfum. Sveitin með öllum sínum undrum á því hug Helgu sem hefur náð að tengja þann heim inn í málverkið. Hún hefur teiknað og málað í gegnum tíðina en fór þó fyrst á námskeið í olíumálun árið 2007 og hefur farið á allnokkur námskeið síðan.
Helga tók þátt í samsýningu hjá Litka Myndlistarfélag í fjögur skipti á árunum 2010 til 2016.
Árið 1986 lauk Helga BA kennaraprófi frá HÍ og mastersprófi í sérkennslufræðum frá HÍ 2017. Hún hefur kennt alla sína tíð í grunnskólum. Auk málverksins eru helstu áhugamálin handavinna og hestamennska sem hún stundar af kappi.
Hægt er að skoða sýninguna Leikur að litum á opnunartíma safnsins.
Nánari upplýsingar:
Katrín Guðmundsdóttir
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is
Sími 4116250