Information about the event

Time
11:00 - 18:00
Price
Free
Language
Mörg tungumál
Creative Technology

Hönnunarmars: Hvernig á að framtíðast?

Saturday May 9th 2026

Hvernig eigum við að framtíðast saman? Við bjóðum þér á viðburðaröð þar sem bókasafnið verður vettvangur fyrir innihaldsríkar upplifanir, stað þar sem við meðvitað tengjust og aftengjust og hugum að framtíð sem einkennist af meiri umhyggju í sambandi okkar við tækni, náttúru og komandi kynslóðir.   

Við munum ímynda okkur með huga og höndum, sáum fræjum fyrir vorið með aðstoð sáningardagatals sem hannað er af Kakkalakki studio, standa frammi fyrir innsetningu um gagnasjálfið frá Samtökum um mannvæna tækni og Alexander Jean Fontenay, taka þátt í spennandi textíltilraun þar sem notast er við Faraday-efni frá Endurtakk studio og Emma Shannon og kitla bragðlaukana með lista- og matreiðslukonunni Pola Sutryk sem býður okkar í framtíðarsmakk þar sem hún gerir tilraunir með gagnkvæmari leiðir til að neyta matar og nærast.  

Þessi viðburður fer fram í viðbyggingunni milli Grófarhúss (Tryggvagötu 15) og Biang (Tryggvagötu 13).

DAGSKRÁ - 11:00-18:00 
11:00 – Vonarsprotar - plöntum fræjum og syngjum saman 
13:00 -  Framtíðarsmakk - gagnkvæmari leiðir til að neyta matar og næringast 
15:00 - Viljandi aftenging - svefnpokar fyrir síma og aðrar tilraunir með Faraday-efni 

Viðburðurinn á Facebook

Nánari upplýsingar veitir: 
Martyna Karolina Daniel - Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is