ÞÆR | Leiklestur

Information about the event

Time
12:00 - 14:00
Price
Free
Language
Íslenska
Past Events

ÞÆR | Leiklestur á verki í vinnslu

Friday June 7th 2024

 

Þær mætast aftur. Á bar í miðbænum hittast tvær ungar konur fyrir tilviljun eftir að hafa ekki sést lengi. Er uppgjör óumflýjanlegt?

Í sumar vinnur Thea Snæfríður Kristjánsdóttir að leikriti sínu ÞÆR sem fjallar um eftirmál ástarsambands tveggja ungra kvenna og samskipti þeirra. Í verkinu er tekist á við spurningar um þörf manneskjunnar fyrir uppgjör og sjálfseyðingarhvötina sem getur falist í endurtekningu sársaukafullra samskipta.

Á vinnutímanum, meðan handritið er í mótun, verða brot úr verkinu leiklesin á fjórum viðburðum. Sá fyrsti verður föstudaginn 7. júní á fimmtu hæð á Borgarbókasafninu Grófinni. Þá verður sama brotið úr leikritinu lesið þrisvar, klukkan 12:00, 12:40 og 13:20

Leiklesarar: Salka Gústafsdóttir og Steinunn Lóa Lárusdóttir.

Verkefni á vegum Listhópa Hins hússins sumarið 2024.